Til upphafssíðu  Markmið  Um Hekluskóga  Stjórn/nefndir  Ritað efni  Tenglar

 

 

Sáning á birkifræi (25.4.2012)

Verkefnisstjóri sáði um 50 kg af óhreinsuðu birkifræi sem safnað var af sjálfboðaliðum haustið 2011 víða um sunnanvert landið. Var fræinu sáð á víð og dreif innan 12 ha svæðis vestast í Langöldu rétt vestan við Hrauneyjar. Var fræinu dreift á bakka ónefnds lækjar sem rennur norðan í öldunni og í hálfgróin svæði upp í Langöldu. Dreifsáningar af birki hafa reynst ágætlega s.s. í Gára norðan Gunnarsholts og á svæði sunnan Reyðarvatnsrétta. Mun eldri sáningar af birki finnast víðar um land s.s. Hákonarlundur í Haukadal og Gunnlaugsskógur við Gunnarsholt. Það getur tekið fræið 1-3 ár og jafnvel lengur að spíra og árangur sáningarinnar sést því ekki að ráði fyrr en eftir 5-10 ár.

 

Gróðursetning hefst óvenju snemma (20.4.2012)

Afhending plantna til þátttakenda í Hekluskógum hófst óvenju snemma þetta árið. Nú er jörð orðin frostlaus og tími til kominn að gróðursetja. Ráðgert er að gróðursetja um 200 þúsund plöntur í vor og 50 þúsund í haust. Um 175 aðilar hafa gert samning við Hekluskóga um plöntustyrki og eru lönd þessara aðila innan marka Hekluskóga. Mikill áhugi á útvíkkun starfssvæðis er hjá sumarhúsaeigendum og öðrum landeigendum sem eiga lönd utan marka Hekluskóga. Verður skoðað af verkefnisstjóra í samráði við stjórn og samráðsnefnd Hekluskóga hvort möguleiki sé á stækkun starfssvæðis á næstu mánuðum.

Það styttist í vorið jafnvel upp til fjalla á Hekluskógasvæðinu. Brumin eru farin að þrútna á tveggja ára birkiplöntum og hvannir víða farnar að gægjast upp úr sverðinum.

Fróðleiksfúsum er bent á fróðleik á heimasíðu Hekluskóga:

F R Ó Ð L E I K S M O L A R   H E K L U S K Ó G A.

 

 

 

 

Eldri fréttir:

2011

2010

2009

2008

2007

2006

2005

 

 

Hekluskógar, Gunnarsholti, 851 Hella - hreinn@hekluskogar.is 

Sími: 899-1971